Flugferðum ekki fjölgað hjá WOW air

Flugferðum WOW air verður ekki fjölgað vegna verkfallsins.
Flugferðum WOW air verður ekki fjölgað vegna verkfallsins. mbl.is/Sigurður Bogi

WOW air ætlar ekki að fjölga flugferðum hjá sér vegna verkfalls flugvirkja hjá Icelandair.

Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, segir að flugfloti félagsins sé fullnýttur. „Það er 90% bókað hjá okkur, ef ekki meira, enda er þetta háannatími núna rétt fyrir jólin, segir hún.

„Vonandi leysist þetta sem fyrst,“ bætir Svanhvít við um deilu flugvirkja.

Fram kom í máli Svanhvítar fyrir helgi að WOW air myndi endurskoða hvort flugferðum yrði fjölgað ef verkfallið yrði að veruleika.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert