Fluttir á slysadeild með höfuðáverka

Fljúgandi hálka er á Akureyri.
Fljúgandi hálka er á Akureyri. Facebook-síða lögreglunnar

Tveir hafa verið fluttir á slysadeild á Akureyri í morgun með áverka á höfði eftir hálkuslys. Tíu stiga hiti er á Akureyri og fljúgandi hálka, að sögn lögreglunnar á Akureyri.

Á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram að svell sé víða á götum, bifreiðastæðum og gangstígum. Staðan er svipuð víða á Norðausturlandi en unnið er að því að bera á götur og stíga, segir á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert