Ágætlega hefur gengið að koma ökumönnum og farþegum þeirra bíla, sem voru í vanda á Mosfellsheiði í dag, til hjálpar og er röð bíla á leiðinni niður af heiðinni í fylgd með bílum björgunarsveita.
Davíð már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að nokkrir bílar verði skildir eftir uppi á heiðinni. Björgunarsveitarfólk frá Reykjavík, Selfossi, Laugarvatni, Grímsnesi og Eyrarbakka hefur unnið að því að koma fólki niður af heiðinni.
Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði eru enn lokaðar og verða það þar til annað verður ákveðið.