16 ára reyndi að villa um fyrir lögreglu

mbl.is/Eggert

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í fyrrinótt reyndist ekki vera nema sextán ára gamall og því ökuréttindalaus. Stráksi reyndi fyrst að villa um fyrir lögreglu með því að veita rangar upplýsingar um sig, en bílinn sem hann ók hafði hann jafnframt tekið ófrjálsri hendi.

Forráðamönnum hans var gert viðvart um tiltækið sem jafnframt var tilkynnt barnaverndaryfirvöldum að því er segir í dagbók lögreglunnar á Suðurnesjum.

Þá stöðvaði lögregla tvö ökumenn vegna gruns um fíkniefnaakstur. Reyndist farþegi annarrar bifreiðarinnar vera með efni sem talið er kannabis í fórum sínum.

Loks reyndist einn ökumaður aka sviptur ökuréttindum og annar  var stöðvaður grunaður um ölvunarakstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert