Ástand vega á Austurlandi ógnar öryggi

Tjara úr malbikinu festist í dekkjunum. Ásamt tjörunni safnast fyrir …
Tjara úr malbikinu festist í dekkjunum. Ásamt tjörunni safnast fyrir sandur og alls kyns skítur. Ljósmynd/Rafn Harðarson

„Þetta er bara fyrir neðan allar hellur. Það fyllast öll dekk hjá okkur og hefur áhrif á alla akstureiginleika bílanna,“ segir Rafn Harðarson, vörubílstjóri hjá flutningsfyrirtækinu Sigga danska ehf.

Rafn ók austur til Hornafjarðar í gær og segir að slæmt ástand þjóðvegarins hafi valdið því að mikil tjara safnaðist upp í dekkjum vörubílsins og gerði aksturinn afar hættulegan.

Sigurður Hafsteinsson, eigandi Sigga danska, segir að nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða en vörubílstjórar hafa ítrekað bent á vandamálið. „Þetta er orðið það mikið í dekkjunum núna að bílarnir missa aksturseiginleika. Þetta voru fimm bílar í gær; einn frá mér og fjórir aðrir, og voru þeir allir í vandræðum. Þeir héldu að það væri sprungið á bílunum, þeir létu svo illa,“ segir Sigurður og bætir við að bílstjórarnir séu búnir að fá nóg.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert