Endaði bílferðina inni í garði

Bíll valt í Keflavík í gærkvöld þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í hálku og lenti á  steinsteypustöpli girðingar með þeim afleiðingum að bíllinn valt á hliðina.

Áður hafði önnur bifreið hafnað inni í garði í Njarðvík. Sá ökumaður hafði misst stjórn á bíl sínum í beygju með þeim afleiðingum að bílferðin endaði inni í húsagarði. Kalla þurfti til dráttarbifreið til að fjarlægja bílinn úr garðinum.

Fram kemur í dagbók lögreglunnar á Suðurnesjum að fleiri umferðaróhöpp hafi orðið í umdæminu á síðustu dögum. Þannig fór bíll út af Grindavíkurvegi og bíll valt á Sandgerðisvegi.

Ekki urðu hins vegar teljandi slys á fólki í þessum óhöppum, en þó þurfti að flytja ökumann bílsins sem valt á Sandgerðisvegi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert