42 kg af hörðum efnum

Röntgenmynd sem sýnir pakkningarnar sem maðurinn var með innvortis.
Röntgenmynd sem sýnir pakkningarnar sem maðurinn var með innvortis. Facebook-síða lögreglunnar á Suðurnesjum.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum lagði hald á rúmlega 42 kíló af hörðum fíkniefnum í 46 fíkniefnamálum í fyrra.

Málin komu öll upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar af voru rúm 35 kíló af kókaíni, tæp 7 kíló af amfetamíni, 196 grömm af metamfetamíni og 61 gramm af ecstasy (MDMA). Auk þessa voru haldlögð rúmlega 240 grömm af hassi. Rannsóknir allra þessara mála voru á borði rannsóknardeildar LSS.

Undirstrikað er að um bráðabirgðatölur er að ræða, sem kunna að taka smávægilegum breytingum þegar endanlegt heildaruppgjör ársins liggur fyrir.

Pakkningar fullar af fíkniefnum sem burðardýrið var með innvortis.
Pakkningar fullar af fíkniefnum sem burðardýrið var með innvortis. Facebook-síða lögreglunnar á Suðurnesjum

Sá einstaklingur er reyndist hafa mest magn fíkniefna innvortis var belgískur mikið fatlaður karlmaður sem var með rúmlega eitt kíló af kókaíni í 106 pakkningum. Er það mesta magn sem fundist hefur í einum einstaklingi í innvortis fíkniefnamálum hingað til.

Styrkur haldlagðra efna í innvortis málum er yfirleitt mjög mikill eða um 90%. Styrkur í haldlögðum neysluskömmtum á götunni er á bilinu 7 – 15%. Því má ætla  að margfalda megi ofangreind 42 kíló með 7 eða 8 sem gerir þá rúmlega 300 kíló af hörðum fíkniefnum á götum úti.

„Langflest þessara mála eiga upptök sín hjá tollvörðum sem hafa með höndum mjög virkt og skipulegt eftirlit í flugstöðinni. Sú leið að reyna að smygla fíkniefnum þá leiðina verður því að teljast mjög áhættusöm fyrir þá sem það reyna. Að auki má minna á afdrif rúmlega tvítugs íslensks karlmanns sem kom með 42 pakkningar innvortis til landsins í október. Ein pakkningin tók að leka og var hann fluttur lífshættulega veikur með hraði á Landspítalann þar sem hann undirgekkst rúmlega þriggja klukkustunda skurðaðgerð.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert