Auðveldar aðgengi íslenskra lækna að framhaldsmenntun í hjartalækningum

Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, og Frieder Braunschweig, …
Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, og Frieder Braunschweig, yfirlæknir á sviði hjartalækninga á Karolinska-sjúkrahúsinu. Ljósmynd/Landspítalinn

Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, og Frieder Braunschweig, yfirlæknir á sviði hjartalækninga á Karolinska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð, undirrituðu í dag samkomulag um víðtækt samstarf.

Samkomulagið var kynnt á fundi sem var liður í heimsókn forseta Íslands á Karolinska-sjúkrahúsið í Stokkhólmi að viðstöddum forsetahjónunum og sænsku konungshjónunum í Wallenberg-sal Nóbelshússins.

Þetta kemur fram á vef Landspítalans.

Að sögn Davíðs felur samkomulagið í sér möguleika á fjölþættu samstarfi hvað varðar framhaldsmenntun, vísindarannsóknir og klíníska þjónustu.

Davíð segir að þetta gæti orðið góður samningur fyrir báða aðila og auðveldar til að mynda aðgengi íslenskra lækna að framhaldsmenntun í hjartalækningum á Karolinska-sjúkrahúsinu auk þess að stórefla tækifæri til vísindarannsókna. Þetta skapar einnig áhugaverða möguleika á gagnkvæmum vistaskiptum lækna og hjúkrunarfræðinga til skemmri tíma sem geti nýst mjög vel til að efla starfsþróun, að því er segir á vef LSH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert