„Íslandsmet í tollheimtu“

Franskar kartöflur.
Franskar kartöflur. Ljósmynd/Wikipedia

Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ríkinu sé heimilt að leggja 76% toll á franskar kartöflur. Innflutningsfyrirtækin Innnes og Hagar töpuðu í dag málum þar sem látið var reyna á þetta Íslandsmet í tollheimtu, en tollurinn á franskar kartöflur er hæsti prósentutollur í íslensku tollskránni.

Þetta kemur fram á vefsíðu Félags atvinnurekenda en eins og áður var greint frá var ríkinu heim­ilt að leggja á 76% verðtoll á inn­flutt­ar fransk­ar kart­öfl­ur ár ár­un­um 2010-2014.

„Niðurstaðan er að sjálfsögðu vonbrigði og allur málflutningur íslenska ríkisins í þessu máli er afar öfugsnúinn,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.

FA segir að ríkið hafi haldið því fram fyrir að tollurinn væri ætlaður til almennrar tekjuöflunar og hafi fullyrt að ekki væri um að ræða verndartoll fyrir innlenda framleiðslu. Ekkert í málsvörn ríkisins hafi hins vegar skýrt af hverju tollurinn var svona hár eða hvers vegna franskar kartöflur ættu að vera tekjulind fyrir ríkið umfram aðrar vörur.

„Þessi tollur hefur áratugum saman verið rökstuddur sem verndartollur en er núna allt í einu fjáröflunartollur. Hér liggur nú fyrir dómur Hæstaréttar sem fastbindur þessa afstöðu íslenska ríkisins og frá henni verður því ekki horfið. Tollurinn verndar einfaldlega ekkert. Það þýðir það eitt að Alþingi er í lófa lagið að afnema þennan toll, rétt eins og 59% toll á snakk sem var aflagður fyrir rúmu ári með tilheyrandi hagsbótum fyrir neytendur,“ segir Ólafur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert