Ráðherra gaf Íslendingasögurnar

Alice Bah Kuhnke og Guðlaugur Þór.
Alice Bah Kuhnke og Guðlaugur Þór. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, afhenti Alice Bah Kuhnke, menningarmálaráðherra Svíþjóðar, til gjafar Íslendingasögurnar í sænskri þýðingu við hátíðlega athöfn í Uppsölum í dag. Í ræðu sinni rakti ráðherra sagnaarfinn og þýðingu Íslendingasagnanna enn þann dag í dag.

„„Ber er hver að baki nema bróður sér eigi", segir í sögnunum og er þar vísað til vopnaðra bardaga, en í dag má heimfæra spakmælin upp á norræna samvinnu og sameiginlegt öryggi Norðurlandanna á tímum aukinnar óvissu og spennu," sagði Guðlaugur Þór.

Í gær fundaði utanríkisráðherra með Ann Linde, Evrópumála- og viðskiptaráðherra Svíþjóðar, þar sem málefni Evrópu, Brexit og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar voru meðal annars til umfjöllunar.

Þá fundaði utanríkisráðherra með Peter Hultqvist, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, þar sem öryggismál á Eystrasaltssvæðinu og norðanverðu Atlantshafi, og aukin varnarsamvinna Íslands og Svíþjóðar, voru til umræðu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert