Óvissa hjá starfsmönnum Spalar

Umferð undir Hvalfjörð hefur aukist mjög á allra síðstu árum …
Umferð undir Hvalfjörð hefur aukist mjög á allra síðstu árum og árið 2017 var algert metár.

Starfsmenn Spalar hafa staðið í bréfaskriftum við samgönguráðuneytið og óskað eftir svörum um hvað taki við þegar Spölur afhendir ríkinu Hvalfjarðargöng til eignar og rekstrar síðsumars 2018.

Starfsmennirnir vilja vita hvort ríkið (Vegagerðin) hyggist nýta starfskrafta þeirra eftir eigendaskiptin.

Samkvæmt upplýsingum Gylfa Þórðarsonar, forstjóra Spalar, eru átta starfsmenn í gjaldskýli í fullu starfi og átta starfsmenn í stjórnunar- og skrifstofustörfum, flestir í 50-90% starfi. 

Sumir starfað frá upphafi

Starfsmenn Spalar rituðu Jóni Gunnarssyni, þáverandi samgönguráðherra, bréf 28. apríl 2017. Tilefni bréfsins var að vekja athygli ráðherrans á óvissu sem ríkti um stöðu starfsmanna Spalar „með tilheyrandi áhyggjum af framtíð okkar og afkomu“.

Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri svaraði fyrir hönd ráðherra með bréfi til starfsmanna dagsettu 29. maí 2017. „Hér með upplýstist að nú er verið að skoða leiðir um framkvæmdir og rekstur Hvalfjarðarganga í ráðuneytinu, þ.m.t. mögulega tvöföldun. Stefnt er að því að ákvörðun um framtíð og rekstrarfyrirkomulag liggi fyrir síðsumars eða í haust,“ sagði bréfinu.

Skemmst er frá því að segja að engin ákvörðun liggur enn fyrir hvernig rekstri ganganna verður háttað í framtíðinni og starfsmenn Spalar hafa ekkert frekar heyrt frá ráðuneytinu.

„Ég reikna með að allir starfsmenn á skrifstofu verði við vinnu a.m.k. tvo mánuði eftir eigendaskiptin en síðan fækki nokkuð hratt. Á endanum verði aðalbókarinn einn eftir til að klára ársreikning fyrir 2018 í samvinnu við endurskoðunarfyrirtækið, sem væntanlega gerist í janúar eða febrúar 2019,“ segir Gylfi Þórðarson.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert