Páskaegg í búðir 10 vikum fyrir páska

Þorrinn hófst á bóndadaginn á föstudaginn. Enn eru rúmlega tveir …
Þorrinn hófst á bóndadaginn á föstudaginn. Enn eru rúmlega tveir mánuðir til páska en þegar eru farin að sjást páskaegg í búðum. Ljósmyndari rakst á þessi í Hagkaup í dag. mbl.is/Eggert

Þrátt fyrir að enn séu um 10 vikur í páska eru páskaegg komin í sölu, alla vega í einni verslun Hagkaupa. Þegar ljósmyndara mbl.is bar að garði í verslun fyrirtækisins í Skeifunni var búið að koma upp einni appelsínugulri körfu þar sem hægt var að finna lítil páskaegg í stærð tvö.

Samkvæmt starfsmanni búðarinnar sem ljósmyndari ræddi við er þetta smá sýnishorn áður en páskavertíðin hefst, en sem fyrr segir eru enn rúmir tveir mánuðir í páska og eggin nokkuð tímanlega á ferð í þetta skiptið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert