Sindri Freysson fær Ljóðstaf Jóns úr Vör

Ljóðstafur Jóns úr Vör var afhentur í Salnum í Kópavogi …
Ljóðstafur Jóns úr Vör var afhentur í Salnum í Kópavogi í dag. F.v. Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, Anton Helgi Jónsson, formaður dómnefndar, Valgerður Benediktsdóttir, Sindri Freysson, Hrafnhildur Þórhallsdóttir og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sindri Freysson fékk í dag afhentan Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Kínversk stúlka les uppi á jökli. Þetta er í sautjánda sinn sem Lista- og menningarráð Kópavogs afhendir Ljóðstaf Jóns úr Vör. Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi af Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra og Karen E. Halldórsdóttur, formanni lista- og menningarráðs.

Alls bárust 278 ljóð í keppnina að þessu sinni. Í öðru sæti var Hrafnhildur Þórhallsdóttir með ljóð sitt Elegía en Valgerður Benediktsdóttir hlaut þriðja sætið fyrir ljóðið Íshvarf. Þá fengu átta ljóð viðurkenningar.

Einnig voru tilkynnt úrslit í ljóðasamkeppni grunnskólanna í Kópavogi. Henrik Hermannsson hlaut þar fyrstu verðlaun fyrir ljóðið Myrkrið. Höfundur er nemandi í 7. bekk í Hörðuvallaskóla. Í öðru sæti var ljóðið Frelsi eftir Eyrúnu Flosadóttur. Hún er nemandi í 9. MSJ í Kársnesskóla. Ljóðið Allt eða ekkert eftir Söndru Diljá Kristinsdóttur var í þriðja sæti en Sandra er í 8. bekk Salaskóla. Vinningsljóðum grunnskólanema verður dreift um bæinn á veggspjöldum og bókamerkjum.

Sigurvegarar í ljóðakeppni grunnskólanna í Kópavogi. Henrik Hermannsson, Eyrún Flosadóttir …
Sigurvegarar í ljóðakeppni grunnskólanna í Kópavogi. Henrik Hermannsson, Eyrún Flosadóttir og Sandra Diljá Kristinsdóttir. mbl.is/Eggert

Efnt hefur verið til ljóðasamkeppninnar um Ljóðstaf Jóns úr Vör frá árinu 2002 og eru úrslit keppninnar tilkynnt á fæðingardegi skáldsins. Handhafi Ljóðstafsins fær farandgrip til varðveislu í eitt ár, verðlaunagrip til eignar og 300.000 króna peningaverðlaun. 200.000 kr. eru í verðlaun fyrir annað sætið og 100.000 fyrir það þriðja.

Þá hlutu átta einstaklingar viðurkenningu dómnefndar fyrir tíu ljóð: Halla Oddný Magnúsdóttir hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Ástaljóð frá Alexandríu. Sindri Freysson hlýtur viðurkenningar fyrir ljóðin Ekkert að óttast og Vikumenn. Hallgrímur Helgason hlýtur viðurkenningar fyrir ljóðin Ég og hún og Portúgölsk pera, Eyþór Gylfason hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Hvítt suð. Pedro Gunnlaugur Garcia hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Leikbrúður. Margrét Hlín Sveinsdóttir hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Postulínshundurinn. Steinunn Lilja Emilsdóttir hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Vitleysa og Ásgeir H. Ingólfsson hlýtur viðurkenningu fyrir ljóðið Þeir skjóta þig alltaf í bakið.

Ljóðstafur Jóns úr Vör.
Ljóðstafur Jóns úr Vör. mbl.is/Eggert

Jón úr Vör fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 21. janúar 1917 en starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins. Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð.

Kínversk stúlka les uppi á jökli

Í þessu landi
leynast engir brautarpallar
með þokuskuggum að bíða tvífara sinna
Engar mystískar næturlestir
sniglast gegnum myrkrið á hraða draumsins
Engir stálteinar syngja
fjarskanum saknaðaróð

Í þessu landi
situr rúta föst á jökli
Hrímgaðar rúður
Framljósaskíma að slokkna
Frosin hjól að sökkva
Andgufa sofandi farþega
setur upp draugaleikrit 

Og á aftasta bekk
les kínversk stúlka
um lestargöng sem opnast og lokast
einsog svart blóm

Sindri Freysson

Höfundur er handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör 2018

Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs:

Myrkrið

Það er dimmt og ég er hræddur
ég veit ekki hvert ég er að fara eða hvar ég á heima.
Vindurinn blæs á móti mér og það rignir
mér finnst ég vera einhver annar.
Ég hleyp eins hratt og ég get.
Ég heyri öskur og hleyp enn hraðar
inn í myrkrið.
Ég hleyp bara eitthvert í von um að ég komist heim.
Ég er þreyttur og mig langar að sofna
en ég get það ekki og verð að halda áfram
en ég er rennblautur og leggst á jörðina.
Ég gefst upp og hætti að reyna
ég vissi að það var enginn tilgangur að reyna.
En í sama bragði sá ég spegilmynd mína
ég spyr sjálfan mig hvað get ég gert?
Ég ákvað að ég ætlaði ekki að gefast upp
ég stóð upp og hljóp eins hratt og ég gat.
Ég sá ljós þarna átti ég heima.


Henrik Hermannsson

Höfundur er sigurvegari í Ljóðakeppni grunnskólanemenda í Kópavogi 2018 og nemandi í 7. bekk Hörðuvallaskóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert