Björgunarsveitir standa í ströngu

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/RAX

Björgunarsveitir á Norðurlandi hafa verið kallaðar út á þremur stöðum til að aðstoða vegfarendur í vanda. Um 20 bílar eru fastir við Víðigerði, þá sitja nokkrir bílar fastir í Víkurskarði en veginum var lokað vegna umferðaróhapps þegar flutningabíll þveraði veginn.

Björgunarsveitin á Þórshöfn var einnig kölluð út vegna nokkurra bíla sem hafa lent í vandræðum vegna veðurs. 

Útköllin hafa borist á síðustu tveimur til þremur klukkustundum, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg. 

Vetrarveður er á landinu, hvassvirði og skyggni lítið. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á öllu landinu fyrir utan hálendið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert