Flugfreyjufélag Íslands mun boða stjórn og trúnaðarráð félagsins til fundar í vikunni.
Þar verður tekin ákvörðun um næstu skref félagsins í kjaradeilu þess við Primera Air.
,,Það dregur til tíðinda seinni part vikunnar þegar stjórn og trúnaðarráð hafa komið saman og þá munum við senda frá okkur tilkynningu,“ segir Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands.