Ísafjarðar- og Vestmannaeyjaflugi aflýst

Flugi til og frá Ísafirði og Vestmannaeyjum hefur verið aflýst …
Flugi til og frá Ísafirði og Vestmannaeyjum hefur verið aflýst vegna veðurs. mbl.is/Árni Sæberg

Flugferðum til og frá flugvöllunum í Vestmannaeyjum og á Ísafirði hefur verið aflýst í dag vegna veðurs. Veður hefur ekki haft áhrif á flug í Keflavík, Reykjavík, á Akureyri eða Egilsstöðum og er ekki útlit fyrir að það breytist. Þetta kemur fram í svari Isavia við fyrirspurn mbl.is.

Spáð er miklum vindi víða um land í dag. Veður er núna verst á Suðurlandi en það færist yfir suðvesturhornið, Vesturland og Vestfirði næstu klukkutímana en verður verst á Norður- og Austurlandi á morgun.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert