Grunaður um brot gegn barni árum saman

Fangelsið á Hólmsheiði.
Fangelsið á Hólmsheiði. mbl.is/Hari

Karlmaður á fimmtugsaldri er grunaður um að hafa brotið gegn ungum pilti um nokkurra ára skeið þegar pilturinn var á barnsaldri og unglingur.

Maðurinn var á föstudag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meintum kynferðisbrotum hans, segir í forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag. Í gær var fjallað um á forsíðu blaðsins að karl á sextugsaldri hefði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um brot gegn  sautján ára pilti um nokkurt skeið og hugsanlega fleiri börnum. 

Fyrst var fjallað um það mál í fréttum Stöðvar 2 á föstudag. 

Frétt Vísis um málið

Frétt Fréttablaðsins í dag

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert