Myllan hefur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað Myllu Hafrakökur, Bónus Hafrakökur og Hagkaups Hafrakökur vegna aðskotahlutar sem fannst í einni köku.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Myllu Hafrakaka, Bónus Hafrakaka og Hagkaups Hafrakaka
Vörunúmer: 1505, 1485, 1488
Strikanúmer: 5690568015056, 5690568014851, 5690568014882
Nettómagn: 100 g
Best fyrir: til og með 31. janúar 2018
Framleiðandi: Myllan, Skeifunni 19, 108 Reykjavík
Dreifing: Verslanir um land allt.
„Neytendur sem keypt hafa Hafrakökur með framangreindum dagsetningum mega skila þeim í verslanir þar sem kökurnar voru keyptar eða til Myllunnar, Skeifunni 19, milli 8-16 alla virka daga. Nánari upplýsingar fást hjá Gæðadeild Myllunnar í síma 5102379 eða netfang: gaedastjori@myllan.is,“ segir í tilkynningunni.