Lenti á hliðinni eftir vindhviðu

Björgunarsveitir voru kallaðar út í nótt að aðstoða fólk á …
Björgunarsveitir voru kallaðar út í nótt að aðstoða fólk á Mosfellsheiði.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um óhapp á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi um eitt í nótt en þar hafði vindhviða feykt tengivangi vöruflutningabifreiðar á hliðina. Ökumann sakaði ekki að sögn lögreglu.

Björgunarsveitir hafa nótt verið að aðstoða fólk á Mosfellsheiði en þar sátu bifreiðar fastar. Tilkynning þar um barst um hálftvö í nótt, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert