PCC Bakki boðar til íbúafundar

PCC Bakki Silicon. Stjórnendur kísilsversins hafa boðað til fundar með …
PCC Bakki Silicon. Stjórnendur kísilsversins hafa boðað til fundar með íbúum til að kynna gangsetningu ofna verksmiðjunnar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Stjórnendur kísilsvers PCC Bakki Silicon hf. hafa boðað til fundar með íbúum Húsavíkur og nágrennis. Þar verður íbúum kynnt gangsetning ofna verksmiðjunnar á Bakka sem hefst með gangsetningu fyrri ofnsins í febrúar og í apríl á seinni ofninum. Þá verður farið yfir helstu atriði sem varða gangsetningu ofnanna og hvers íbúar geti helst vænst meðan á ræsingu ofnanna stendur.

Gangsetningin er sögð verða áskorun fyrir starfsfólk, en að því „til halds og trausts verður hópur erlendra sérfræðinga sem hafa mikla reynslu af þessu ferli og rekstri kísilvera,“ að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Meginmarkmið starfsmanna fyrirtækisins sé að enginn slasist meðan á verkefnunum stendur, að umhverfisáhrif verði sem minnst og að nágrannar verði ekki fyrir óþægindum. „Þá er þess einnig vænst að þegar fullt afl verður komið á ofnana, um það bil viku eftir að hvor ofn um sig verður ræstur, verði íbúar í nágrenninu lítið varir við daglega starfsemi kísilversins.“

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar kl. 17 á Fosshóteli á Húsavík og hefur ráðherrum, þingmönnum kjördæmisins og öðrum hagsmunaaðilum verið gert viðvart og er þeim boðið að sækja fundinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert