Slysvaldur væntanlega ölvaður

Af vettvangi slyssins á Suðurlandsvegi, skammt frá Hádegismóum.
Af vettvangi slyssins á Suðurlandsvegi, skammt frá Hádegismóum.

Ökumaður sem ók yfir á rangan vegarhelming og hafnaði á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt skammt frá Hádegismóum í síðustu viku er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis. Miklar tafir urðu á umferð enda margir á leið til vinnu. Þrír voru fluttir á slysadeild. 

Þriðjudaginn 16. janúar klukkan 8:06 varð árekstur bifreiðar, sem var ekið norður Suðurlandsveg og bifreiðar, sem var ekið suður Suðurlandsveg og yfir á öfugan vegarhelming gegnt Hádegismóum. Tjón varð á tveimur öðrum bifreiðum við áreksturinn. Báðir ökumennirnir og farþegi voru fluttir á slysadeild. Ökumaður síðarnefndu bifreiðarinnar er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis, segir á vef lögreglunnar í gær. 

Í síðustu viku slösuðust sautján vegfarendur í níu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. 

Tvö umferðarslys voru tilkynnt sunnudaginn 14. janúar. Klukkan 9:28 var bifreið ekið á umferðarmerki og ljósastaur við Kringlumýrarbraut skammt frá Sigtúni. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. 

Klukkan 15:26 þann sama dag var bifreið ekið aftan á kyrrstæða bifreið á Kringlumýrarbraut við Háaleitisbraut, sem kastaðist aftan á þriðju bifreiðina, sem kastaðist aftan á þá fjórðu. Ökumaður og farþegi úr einni bifreiðinni voru fluttir á slysadeild.

Miðvikudaginn 17. janúar klukkan 9:21 var bifreið ekið austur Suðurlandsveg, yfir á rangan vegarhelming í Lögbergsbrekku og á hlið bifreiðar, sem var ekið vestur veginn. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild.

Þrjú umferðarslys voru tilkynnt fimmtudaginn 18. janúar. Klukkan 8:05 var bifreið ekið framan á bifreið er var ekið í gagnstæða átt í Brekkulandi við Ásbrekku. Báðir ökumennirnir og farþegi í annarri bifreiðinni voru fluttir á slysadeild.

Kl. 10:43 var bifreið ekið vestur Vesturlandsveg og á ljósastaur við veginn gegnt Lágafellskirkju. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. 

Klukkan 22:58 var bifreið ekið norður Arnarbakka og á ljósastaur nálægt Ferjubakka. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild.

Föstudaginn 19. janúar kl. 13:34 varð fimm bifreiða aftanákeyrsla á Höfðabakka til suðurs, norðan Dvergshöfða. Tveir ökumenn og farþegi voru fluttir á slysadeild.

Laugardaginn 20. janúar kl. 8:06 varð árekstur á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar, en þar lentu saman bifreið sem var ekið vestur Breiðholtsbraut og bifreið sem var ekið af frárein Reykjanesbrautar, en ökumaður hennar beygði til vinstri á gatnamótunum og hugðist síðan aka austur Breiðholtsbraut. Annar ökumannanna kvartaði undan verkjum og leitaði á sjúkrahús í framhaldinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert