Píratar leggja aftur til borgaralaun

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þingflokkur Pírata hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi um borgaralaun í samræmi við stefnu flokksins en tillagan hefur nokkrum sinnum verið lögð fram en ekki náð fram að ganga. Fyrsti flutningsmaður er Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata.

Fram kemur í þingsályktunartillögunni að félags- og jafnréttismálaráðherra verði falið í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðherra „að skipa starfshóp sem kortleggi leiðir til að tryggja öllum borgurum landsins skilyrðislausa grunnframfærslu með það að markmiði að styrkja efnahagsleg og félagsleg réttindi fólks og stuðla að jöfnum tækifærum.“

Fram kemur í greinargerð með þingsályktunartillögunni að fátækt á Íslandi sé að miklu leyti afleiðing íslenskrar velferðarstefnu „sem byggist á skilyrtri velferðarforsjá í formi lágmarksaðstoðar og áherslu á góðgerðarstarfsemi og ölmusu fyrir þá verst settu. Íslenska ríkið hefur í gegnum árin sett lög og reglugerðir sem veita fólki svo lágar bætur að upphæðirnar eru innan fátæktarmarka.“ Ennfremur segir þar:

„Skilyrðislaus grunnframfærsla er hugmynd að kerfi sem ætlað er að leysa almannatryggingakerfið af hólmi eða í það minnsta einfalda það verulega, gera það réttlátara og sömuleiðis uppræta ákveðinn innbyggðan ójöfnuð í samfélaginu. Þetta er framkvæmt með því að greiða hverjum og einum borgara fjárhæð frá ríkinu óháð atvinnu eða öðrum tekjum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert