4 fluttir á slysadeild

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Fjórir voru fluttir á bráðamóttökuna í Fossvogi eftir tvo þriggja bíla árekstra á höfuðborgarsvæðinu á sjötta tímanum, að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Þrír voru fluttir eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi, undir Kópavogsbrúnni, og einn eftir árekstur á Bústaðavegi um svipað leyti.

Talsvert hefur verið um árekstra í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu í dag enda hált víða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert