Harður árekstur í Kópavogi

mbl.is/Hjörtur

Töluverðar tafir eru á umferð á Hafnarfjarðarveginum í suðurátt en harður árekstur varð undir Kópavogsbrúnni. 

Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafa þrír sjúkrabílar verið sendir á vettvang en ekki er vitað nánar um tildrög eða hversu margir eru slasaðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert