Dóra formaður Femínistafélags Pírata

Frá vinstri: Valgerður Árnadóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Helena Magneu Stefánsdóttir …
Frá vinstri: Valgerður Árnadóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Helena Magneu Stefánsdóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson. Ljósmynd/Píratar

Stofnfundur Femínistafélags Pírata var haldinn í gærkvöldi en fyrsti formaður félagsins er Dóra Björt Guðjónsdóttir. Ritari er Helena Magneu Stefánsdóttir og Valgerður Árnadóttir er gjaldkeri. Varamenn eru Helgi Hrafn Gunnarsson og Elín Eddudóttir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pírötum.

Hlutverk félagsins er að standa fyrir málfundum, námskeiðum og fræðslu af ýmsu tagi í þeim tilgangi að efla málefnalega umræðu um femínísk málefni, styðja og efla þá einstaklinga sem starfa innan félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert