Stærsti skjálftinn hingað til

Jarðskjálfti sem talið var að væri 4,6 stig reyndist vera 5,2 stig og er þetta stærsti skjálftinn sem hefur mælst við Grímsey síðan jarðskjálftahrinan hófst. Fólk fann skjálftann víða og allt vestur í Skagafjörð segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir á jarðvársviði Veðurstofu Íslands.

Hún segir að starfsfólk jarðvársviðs muni funda með Almannavörnum fljótlega þar sem farið verður yfir stöðuna.

Hún segir að mjög margir skjálftar hafi mælst og var jarðskjálftahrinan mjög öflug frá því um hálfsex í morgun þangað til rúmlega sjö. 

Fjölmargir hafa sett sig í samband við Veðurstofuna til að tilkynna um að hafa fundið skjálftana og Grímseyingar, sem ekki eru vanir að kippa sér upp við jarðskjálftana, hafi jafnvel haft samband enda kaffið farið að hristast upp úr kaffibollum þeirra. 

Grímseyingum hefur almennt ekki verið svefnsamt í nótt enda hafa fjölmargir stórir skjálftar riðið yfir.

Undanfarna tvo sólarhringa hafa 1.536 jarðskjálftar riðið yfir á þessum slóðum, norðaustur af Grímsey, og af þeim eru 65 yfir þrír að stærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert