ASÍ: Forsendur kjarasamninga brostnar

Gylfi Arnbjörnsson. forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson. forseti ASÍ. mbl.is/Ófeigur

Forsendur kjarasamninga eru brostnar að mati ASÍ en samkvæmt ákvæði í samningunum koma þeir til endurskoðunar fyrir lok þessa mánaðar.

Það er mat ASÍ, að óbreyttu, að forsendur um að launastefna kjarasamninganna hafi verið stefnumarkandi hafi ekki gengið eftir. Því er heimild til uppsagnar þeirra fyrir lok febrúar enn í gildi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu miðstjórnar ASÍ. 

„Vegna þessarar stöðu hefur miðstjórn ASÍ ákveðið að boða til formannafundar aðildarfélaga ASÍ miðvikudaginn 28. febrúar þar sem farið verður yfir málið og ákvörðun tekin um viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert