Stálu 600 tölvum - tveir í haldi

Lögreglan rannsakar málið.
Lögreglan rannsakar málið. mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Tveir íslenskir karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikillar rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á þremur innbrotum í gagnaver í Reykjanesbæ og Borgarbyggð þar sem samtals 600 tölvum var stolið. 

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, að innbrotin hafi átt sér stað á tímabilinu frá 5. desember 2017 til 16. janúar 2018.

Verðmæti þýfisins eru talin nema rúmum 200 milljónum króna.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur rannsakað málið í samvinnu við lögregluembættin á Vesturlandi, Norðurlandi eystra og á höfuðborgarsvæðinu og er rannsóknin í fullum gangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert