Umferðin hæg en áfallalaus

mbl.is/Hjörtur

Umferðin hefur gengið vel fyrir sig á höfuðborgarsvæðinu í morgun að sögn umferðardeildar lögreglunnar, þrátt fyrir ofsaveðrið sem nú gengur þar yfir.

Bílar eru á ferðinni og fólk greinilega á leið til vinnu. Þó að umferðin gangi hægar fyrir sig en venjulega hefur enn sem komið er hvorki komið til óhappa sem lögregla hefur þurft að hafa afskipti af, né heldur virðist hafa myndast umferðarteppa á helstu stofnæðum vegna færðar eða lélegs skyggnis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert