Veikleiki í einangrun orsök bilunar í rafmagnsstreng

Isaac Newton, sérhæft viðgerðarskip, kom að viðgerð strengsins í fyrra.
Isaac Newton, sérhæft viðgerðarskip, kom að viðgerð strengsins í fyrra. Ljósmynd/Aðsend

Bilun í rafmagnsstreng Landsnets sem liggur til Vestmannaeyja í apríl í fyrra orsakaðist líklegast af veikleika í einangrun. Tók viðgerðin 14 daga, en sérhæfða viðgerðarskipið Isaac Newton var fengið til að aðstoða við viðgerðina. Var fjarstýrður kafbátur notaður og klippti hann strenginn í sundur, en bilunin var á 50 metra dýpi.

Var hluti strengsins þar sem bilunin var sendur til rannsóknar á Englandi. Brunaáverkar voru á bútnum vegna skammhlaupsins sem varð í biluninni og því ekki hægt að segja nákvæmlega til um orsökina. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu hins vegar fram á ákveðið magn óæskilegra agna í einangruninni næst brunanum og eru mestar líkur taldar á því að bilunina megi rekja til þeirra.

Í tilkynningu frá Landsneti kemur fram að strengurinn hafi verið framleiddur vorið 2013 í verksmiðju ABB í Svíþjóð. Strengurinn var prófaður samkvæmt stífustu kröfum að framleiðslu lokinni í verksmiðju, m.a. með háspennuprófi.

Þá er tekið fram að rekstur strengsins hafi gengið vel eftir að viðgerð lauk og ekki hafi komið upp nein önnur frávik. Ekkert bendir til annars en að um staðbundinn veikleika hafi verið að ræða og að strengurinn sé eftir viðgerð í góðu ásigkomulagi. Um var að ræða dýrustu viðgerð í sögu Landsnets en viðgerðin kostaði um 630 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert