Fjörutíu útköll vegna vatns

Margir lentu í vandræðum vegna vatnselgs og krapa á götum …
Margir lentu í vandræðum vegna vatnselgs og krapa á götum á höfuðborgarsvæðinu í gær. mbl.is/Harpa

Í nógu var að snúast hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gær er kröpp lægð gekk yfir landið með tilheyrandi úrkomu. Sinnti slökkviliðið fjörutíu útköllum vegna vatns, því síðasta um miðnætti.

Mikill vatnselgur myndaðist víða í gær vegna veðursins. Götur, bílastæði og bílastæðahús fóru á flot eins og sagt var frá í fjölda frétta á mbl.is í gær.

Á morgun mun enn ein lægðin ganga yfir landið og er spáð talsverðri úrkomu á sunnanverðu landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert