Lögreglan leitar að Davíð Fannari

Davíð Fannar Thorlacíus.
Davíð Fannar Thorlacíus. Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar að Davíð Fannari Thorlacius, 19 ára.

Hann er klæddur í svarta hettupeysu (sömu og hann er í á myndinni) og svartar joggingbuxur, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Davíð Fannar er 176 cm á hæð og 130 kg, dökkhærður með skegghýjung.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eftir kl. 13:00 í dag eru beðnir að láta lögreglu vita í síma 444-2805.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert