Gagnrýna seinagang í orkumálum

Ríkisendurskoðun segir stjórnvöld hafa brugðist seint við ábendingum sínum frá …
Ríkisendurskoðun segir stjórnvöld hafa brugðist seint við ábendingum sínum frá árinu 2015, en starfshópur um heildstæða stefnu í orkumálum var fyrst stofnaður í desember á síðasta ári. mbl.is/Sigurður Bogi

Ríkisendurskoðun telur að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafi ekki enn brugðist við ábendingu stofnunarinnar frá árinu 2015 um að marka heildstæða stefnu í orkumálum til að tryggja að uppbygging og rekstur flutningskerfis raforku sé í samræmi við vilja stjórnvalda og taki mið af almannahag. 

Starfshópur var þó stofnaður í desember 2017, en ríkisendurskoðun gagnrýnir það seinlæti. Vegna þessa telur stofnunin ekki rétt að ítreka ábendingu sína, en segist munu fylgjast með framvindu málsins og taka það upp að nýju, gerist þess þörf.

Að mati Ríkisendurskoðunar hafa ráðuneytið og Landsnet brugðist með viðunandi hætti við hinum fjórum þessara ábendinga. Árið 2016 setti atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra sérstaka reglugerð um kerfisáætlun fyrir uppbyggingu flutningskerfis raforku. Eins hefur ráðuneytið tekið til skoðunar breytingu á eignarhaldi Landsnets og skipað starfshóp sem á að skýra betur ábyrgð aðila á raforkumarkaði. Þá hafa skilyrði Orkustofnunar til að sinna eftirliti sínu verið bætt. Að lokum hefur Landsnet gripið til aðgerða til að auka jafnræði við gerð kerfisáætlunar með auknu samráði við hagsmunaaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert