Hlaut áverka á höfði eftir árás

mbl.is/Eggert

Rétt fyrir miðnætti í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um líkamsárás í austurhluta Reykjavíkurborgar. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar hlaut fórnarlambið áverka á höfði eftir barsmíðarnar og brotna tönn. Það þurfti því að leita sér aðstoðar á slysadeild Landspítalans. Að sögn lögreglunnar er málið í rannsókn.

Rúmlega eitt í nótt var svo tilkynnt um mann í miðbæ Reykjavíkur sem væri með hníf í hendi. Lögreglan segir manninn hafa verið í annarlegu ástandi og við athugun kom í ljós að hann var með fíkniefni meðferðis. Hann var fluttur í fangageymslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert