Lögreglan mun í dag líklega fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum vegna umfangsmikillar rannsóknar lögreglunnar á Suðurnesjum á þremur innbrotum í gagnaver í Reykjanesbæ og Borgarbyggð þar sem samtals 600 tölvum var stolið.
Verðmæti þýfisins er talið nema rúmum 200 milljónum króna en innbrotin áttu sér stað á tímabilinu 5. desember 2017 til 16. janúar 2018.
Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, sagði í samtali við Morgunblaðið í dag að verið væri að fara yfir gögn málsins og yfirheyra mennina.
Þá lögreglumenn, sem Morgunblaðið hefur rætt við vegna málsins, rekur ekki minni til þess að viðlíka upphæðir hafi áður verið nefndar í tengslum við innbrot og þjófnaði hér á landi. Því liggur við að um sé að ræða stærsta þjófnaðarmál Íslandssögunnar, í hefðbundnum skilningi þess hugtaks hið minnsta.