Sendibíll valt á Breiðholtsbraut

Sendbíllinn liggur á hliðinni á Breiðholtsbraut.
Sendbíllinn liggur á hliðinni á Breiðholtsbraut. mbl.is/Árni Sæberg

Sendibíll valt á Breiðholtsbraut fyrir skömmu. Ljósmyndari mbl.is var á ferðinni en ekki var lokað fyrir umferð vegna óhappsins. Bifreiðin liggur á hliðinni á umferðareyju.

Uppfært klukkan 17:38

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu valt sendibíllinn rétt fyrir klukkan 17 og fauk hann á hliðina í vindhviðu. Ekki urðu slys á fólki og umferð hefur ekki verið stöðvuð. Slökkvilið og lögregla vinna nú að því að reisa bílinn við aftur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert