Vilja stöðva „græðgisvæðingu yfirstéttarinnar“

Skorað er á ASÍ að segja upp núgildandi kjarasamningi.
Skorað er á ASÍ að segja upp núgildandi kjarasamningi.

Stjórn og trúnaðarráð AFLs Starfsgreinafélags skorar á samninganefnd Alþýðusambands Íslands að segja upp núgildandi kjarasamningi í samræmi við endurskoðunarákvæði hans, þar sem forsendur kjarasamninga eru brostnar að mati ASÍ.

Þetta kemur fram í ályktun sem AFL samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi. 

Hún er svohljóðandi:

„Þar sem forsendur  kjarasamninga eru brostnar að mati  ASÍ skorar stjórn og trúnaðarráð AFLs Starfsgreinafélags á samninganefnd Alþýðusambands Íslands að segja upp núgildandi kjarasamningi í samræmi við endurskoðunarákvæði hans. Gegndarlausar launahækkanir til æðstu embættismanna, þingmanna og annarra stjórnenda eru langt umfram það sem venjulegt launafólk fær og því eykst sífellt mismunun í samfélaginu.  AFL Starfsgreinafélag telur því rétt að segja upp samningum og freista þess að ná samningum við atvinnurekendur og ríkisstjórn um aukinn jöfnuð og réttlæti. Það er kominn tími á að stöðva græðgisvæðingu yfirstéttarinnar og snúa vörn í sókn.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert