Vill stuðla að lögmætum viðskiptum með rafrettur

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir frumvarp um rafrettur stuðla að lögmætum viðskiptum með þessa vöru og tryggja eftirlit og mikilvæga neytendavernd. Aðgengi fólks að rafrettum og reglur um notkun þeirra samkvæmt frumvarpinu geri þeim hægt um vik sem vilja hætta tóbaksnotkun með aðstoð þeirra.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Ráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær. Eins og fram kom í ræðu hennar er frumvarpið fyrst og fremst liður í því að samræma löggjöf og reglur Evrópuríkja í þessum efnum eins og kveðið er á um í Evróputilskipun þar að lútandi. Annars vegar er lagt til að settar verði heildstæðar reglur um heimildir til innflutnings, sölu og markaðssetningar á rafrettum og áfyllingum fyrir rafrettur, auk ákvæða um eftirlit með slíku. Hins vegar eru lögð til ákvæði um heimildir til notkunar rafrettna.

Verði frumvarpið að lögum verður í fyrsta sinn veitt almenn heimild fyrir innflutningi, dreifingu og sölu á rafrettum og áfyllingum fyrir þær hér á landi, hvort sem þær innihalda nikótín eða ekki. Svandís segir mikilvægt að fólk átti sig á þessu, því samkvæmt gildandi lyfjalögum sé óheimilt að selja rafrettur með fyllingum sem innihalda nikótín nema fyrir liggi markaðsleyfi frá Lyfjastofnun.

Frumvarpinu hefur nú verið vísað til umfjöllunar hjá velferðarnefnd Alþingis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert