Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem hefur verið starfandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gefur ekki kost á sér sem varaformaður flokksins á landsfundi flokksins í mars.
Þessu greindi hún frá í þættinum Vikulokin á Rás 1 í morgun.
Nefndi hún að ákvörðunin væri í samræmi við fyrri yfirlýsingar hennar er hún tók við embættinu.
Áslaug Arna mun áfram gefa kost á sér sem ritari flokksins.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tilkynnti um framboð sitt til varaformanns Sjálfstæðisflokksins í Morgunblaðinu í morgun.
Haraldur Benediktsson, 1. þingmaður Norðvestur-kjördæmis, greindi frá því fyrr í vikunni að hann væri að íhuga framboð til varaformanns.