Símkerfi Vegagerðarinnar er bilað

Sími vegagerðarinnar 1777 er óvirkur.
Sími vegagerðarinnar 1777 er óvirkur. mbl.is/Sigurður Bogi

Símkerfi Vegagerðarinnar er bilað í augnablikinu svo að sími 1777 er óvirkur. Unnið er að viðgerð. Þetta kemur fram í tilkynningu.  

Bent er á að hægt er að skoða færð á vegum landsins á vefsíðunni vegagerdin.is 

Á landinu er flestar leiðir greiðfærar en víða snjóþekja eða hálkublettir. 

Talverðar skemmdir eru á slitlagi á vegum vegna veðursins undanfarið. „Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.“ Þetta kemur fram á vef vegagerðarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert