Slasaður skíðamaður á Heljardalsheiði

mbl.is/Ómar

Björgunarsveitin á Dalvík var kölluð út um kl. 16 í dag vegna slasaðs skíðamanns á Heljardalsheiði. Björgunarsveitarfólk ásamt sjúkraflutningamönnum fóru á vettvang á vélsleða.

Uppfært kl. 17:55:

Björgunaraðilar eru komnir að manninum og mun hann vera slasaður á ökkla. Unnið er að því að búa um hann til flutnings niður af heiðinni og í sjúkrabíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert