Léttskýjað á Austurlandi

Veðurútlit á hádegi í dag.
Veðurútlit á hádegi í dag.

Sunnan kaldi, 5-13 m/s, verður á landinu vestantil í dag, en annars hægari vindur. Það verður þá skýjað og lítilsháttar rigning með köflum, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi.
Hiti verður yfirleitt á bilinu 5 til 10 stig að deginum.

Úrkomulítið verður á morgun mánudag með suðlægri átt, 3-10 m/s, og  áfram bjartviðri norðaustantil. Það mun þó kólna dálítið. 

Á þriðjudag er hins vegar útlit fyrir rigningu sunnan- og vestanlands og milt veður á landinu.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert