Áfram í gæsluvarðhaldi vegna síbrota

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness. mbl.is/Ófeigur

Karlmaður var úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í dag, eða til 17. apríl, á grundvelli síbrota að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Maðurinn var handtekinn í lok febrúar í þágu rannsóknar lögreglu á innbrotum í umdæminu.

Annar maður, sem var handtekinn af sama tilefni og gert að sæta vistun í úrræði á vegum barnaverndaryfirvalda, er laus úr haldi lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert