Hinrik vann silfurverðlaun

Hinrik Lárusson hlaut silfurverðlaun.
Hinrik Lárusson hlaut silfurverðlaun. Ljósmynd/Aðsend

Hinrik Lárusson sem starfar á Grillinu á Hótel Sögu vann silfurverðlaun í Nordic Junior Chefs-keppninni sem fór fram í Herning í Danmörku í dag. Svíþjóð lenti í fyrsta sæti í sömu keppni og Finnland í því þriðja.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Hafsteinn Ólafsson sem er kokkur ársins 2017 og starfar á Sumac Grill + Drinks keppti í Nordic Chef. Í framreiðslu var það Lúðvík Kristinsson frá Grillinu sem keppti fyrir Íslands hönd. Hvorugur þeirra náði á pall í sínum keppnum.

Klúbbur matreiðslumeistara sendi þessa þrjá keppendur til leiks. Klúbburinn rekur afreksstarf í matreiðslu og framreiðslu, keppnisstarf ungra matreiðslumanna í kokkalandsliðinu og keppnina kokkur ársins ásamt þátttöku í alþjóðlegum keppnum eins og hér um ræðir.

Skipulag keppninnar var í höndum Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara og fór keppnin fram í Herning samhliða matvælasýningunni Foodexpo.

Verðlaunahafar. Hinrik er lengst til vinstri.
Verðlaunahafar. Hinrik er lengst til vinstri. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert