Hlupu af vettvangi áreksturs

mbl.is/Eggert

Þrír menn, sem voru í bíl sem talinn er hafa verið valdur að árekstri á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar um klukkan 1 í nótt, stungu af frá vettvangi. Þeir voru hins vegar handteknir skömmu síðar samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Sá sem ók bílnum er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, að hafa stolið bílnum, ekið án ökuréttinda, vera með fíkniefni í fórum sínum og að aka á móti rauðu ljósi.

Meiðsl þess sem voru í bílnum sem á var ekið eru talin minni háttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert