Til ama á Barnaspítanum

mbl.is

Á tíunda tímanum í gærkvöld var kona í annarlegu ástandi handtekin á Barnaspítala Hringsins þar sem hún var til ama, eins og það er orðað í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Í fórum hennar fundust ætluð fíkniefni og var hún vistuð í fangageymslu.

Klukkan hálf tíu í gærkvöldi var ekið á gangandi vegfaranda á Reykjavegi. Sjúkrabíll flutti hinn slasaða á slysadeild Landspítalans en lögreglan hefur ekki upplýsingar um meiðsli hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert