Föðmuðu Ráðhúsið á Akureyri

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Nemendur Oddeyrarskóla á Akureyri tóku í morgun höndum saman og föðmuðu Ráðhús bæjarins í tilefni þess að 21. mars er alþjóðadagur gegn kynþáttamisrétti. Nemendur skólans eru um 200 og þar sem hópurinn nær ekki utan um skólabyggingarnar var ákveðið að finna hentugt stórhýsi í grenndinni og Ráðhúsið þótti tilvalið.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna valdi á sínum tíma 21. mars sem alþjóðadag gegn kynþáttamisrétti, til að minnast 69 mótmælenda sem voru myrtir þennan dag árið 1960, er þeir tóku þátt í mótmælum gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku.

mbl.is/Akureyrarbær
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert