Sendi heillaóskir til forseta Kína

Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson mbl.is/Eggert

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sendi í dag, heillaóskir til forseta Kína, Xi Jinping, sem fyrir fáeinum dögum var endurkjörinn sem forseti lands síns.

Forseti áréttar í kveðju sinni mikilvægi þess að þjóðarleiðtogar „stuðli að friði í heiminum og leitist við að veita fólki öryggi og hagsæld, tryggja réttindi þess og einstaklingsfrelsi.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Xi Jinping, forseti Kína.
Xi Jinping, forseti Kína. AFP

Í bréfinu nefnir forseti jafnframt farsælt samstarf Kínverja og Íslendinga á fjölmörgum sviðum um langt árabil.

Hann talar um að viðskipti landanna hafi aukist jafnt og þétt í kjölfar fríverslunarsamnings sem var undirritaður  árið 2013 og samvinna íslenskra og kínverskra fyrirtækja um hitaveitur í kínverskum borgum hafi reynst afar farsæl og stuðlað að bættum loftgæðum í Kína.

Að endingu nefnir forsetinn vaxandi fjölda kínverskra ferðamanna sem heimsækja Ísland ár hvert og vonar að „samstarf þjóðanna verði áfram farsælt og árangursríkt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert