Tveir karlar og ein kona voru í Héraðsdómi Reykjaness í dag úrskurðuð í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á innflutningi á um 600 grömmum af kókaíni.
Mennirnir voru úrskurðaðir í varðhald til 4. apríl en konan til 28. mars. Þau eru öll af erlendu bergi brotin, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Rannsókn málsins er á frumstigi.