Læknafélagið telur þróunina varasama

Læknar að störfum.
Læknar að störfum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Læknafélag Íslands (LÍ) hefur lýst yfir miklum áhyggjum yfir stöðu heilsugæslunnar á landsbyggðinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu vegna frétta í gær um stöðu mála varðanda verktakalækna á Heilbrigðisstofnun Austurlands.

„Um alllangt skeið hefur staðan verið sú að heilsugæslustöðvum gengur illa að manna stöður heilsugæslulækna. Um þennan vanda var fjallað á málþingi Félags ísl. heilsugæslulækna í byrjun þessa mánaðar. Það var einnig gert í gær á fundi Landssamtaka heilbrigðisstofnana, sem haldinn var á Egilsstöðum í gær,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur fram að heilsugæslustöðvar hafi gripið til þess ráðs vegna vandans að manna stöður lækna tímabundið, oftast í viku í senn með læknum sem sinna læknisstörfunum sem verktakar.

„LÍ telur þessa þróun varasama ekki síst m.t.t. samfellu þjónustu við íbúa viðkomandi heilsugæslusvæða. Þessi staða varpar ljósi á undirliggjandi skort sem er á læknum á Íslandi, sérstaklega sérfræðingum í heimilislækningum.

LÍ telur mikilvægt að hefja umræðu um þessa þróun í heilsugæslunni, hvernig spyrna megi við fótum, og snúa þróuninni við þannig að aftur takist að fá lækna til starfa í lengri tíma í heilsugæslu utan Reykjavíkur,“ segir í tilkynningunni.

Læknafélag Íslands ritaði heilbrigðisráðherra bréf vegna þessa máls 7. mars og lýsti sig reiðubúið til viðræðna um mögulegar aðgerðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert